Þá er komið að fyrstu Vetrarleikum félagsins. Við hvetjum alla til að pússa reiðhjálminn og skella sér á vetrarleika Fáks núna á laugardaginn. Að venju fer öll keppnin fram á beinni braut við Hvammsvöllinn að undanskildum pollum og börnum sem verða í TM-Reiðhöllinni.

Skráning fer fram í anddyri Reiðhallarinnar milli klukkan 12:00-12:30 en keppni hefst í TM-Reiðhöllinni klukkan 13:00 á teymdum pollum og unglingaflokkur hefst kl 14:00 á Hvammsvelli. Frítt er fyrir polla, börn og unglinga en skráningargjald er kr 2.000 fyrir aðra flokka.

Pollar – teymdir
Pollar – töltandi
Barnaflokkur
Unglingaflokkur
Ungmennaflokkur
Konur II
Karlar II
Konur I
Karlar I

Kveðja,

Mótanefnd