Þorrablót

Þorrablót

Hið geysivinsæla Þorrablót Fáks verður haldið nk. laugardag (18. jan) og sameiginlegur reiðtúr. Sigvaldi kokkur sér um eitt flottasta þorrahlaðborð landsins og verður matur á borðum frá kl. 17:30 – 21:30. Húsið opnar kl. 17:00 og kostar kr. 3.700 og fyrir börn 14 ára og yngri kr. 1.500. Forsala verður fimmtudaginn 16. janúar frá kl. 18:00 – 19:30

Á laugardaginn verður einnig farinn sameiginlegur stuttur reiðtúr. Lagt af stað frá Reiðhöllinni kl. 14:00. Veitingar í áningu, ma.a. guðaveigar Þorra (brennivínsstaup), kleinur og safi fyrir yngri. Allir að mæta og hafa gaman saman og skella sér svo á Þorrablótið.