Við hvetjum allar konur/stúlkur til að skoða þennan sjóð og sækja um 🙂

 

Afrekskvennasjóður Íslandsbanka og ÍSÍ auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna úthlutunar ársins 2014. Umsóknarfrestur er til og með föstudagsins 19. september.

Afrekskvennasjóður Íslandsbanka og ÍSÍ var stofnaður með framlagi bankans árið 2007. Markmið og tilgangur sjóðsins er að styðja við bakið á afrekskonum í íþróttum og gera þeim betur kleift að stunda sína íþrótt og ná árangri. Er nú verið að úthluta í tíunda sinn úr sjóðnum.

Nánar er hægt að lesa sér til um sjóðinn og nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu ÍSÍ, sjá hér. Umsóknir má senda á: Afrekskvennasjóður ÍSÍ, Engjavegi 6, 104 Reykjavík eða rafrænt á orvar@isi.is