Kæru félagsmenn við viljum hvetja ykkur til að gera Víðidalinn huggulegan fyrir komandi Landsmót. Tilvalið væri að nota núna góða síðsumars og haustdaga í að ditta að, mála og viðhalda húsunum. Við höfðum samband við Slippfélagið sem var til í að gefa Fáksmönnum sérkjör af málningu sem til þarf, en Slippfélagið framleiðir og selur níðsterka íslenska málningu og gefur faglega ráðgjöf hvert sem verkefnið er.

Endilega komið við í Slippfélaginu og nýtið ykkur þessi sérkjör og fáið góðar ráðleggingar í verkefnið.

Tökum saman höndum og gerum dalinn skínandi fyrir næsta sumar 🙂