Opið punktamót verður haldið í Fáki nk. laugardag. Keppt verður í tölti, slaktaumatölti, fjórgangi og fimmgangi. Mótið verður haldið laugardaginn 12. júlí og er öllum opið og tilvalið fyrir þá sem vilja ná sér í lágmarkseinkunn fyrir Íslandsmótið eða bara taka eitt rennsli. Ekki verða riðin úrslit, heldur eru allir flokkar keyrðir saman og þrí inn á í einu og riðið eftir þul.

Skráning á sportfengur fram að hádegi á föstudag       http://temp-motafengur.skyrr.is/ 

Verð kr. 2.000 á grein.