Hulda Gústafsdóttir, nýkrýndur 4gangs sigurvegari í Meistaradeildinni, mun leiða okkur inn í allan sannleikann um leyndardóma við þjálfun fjórgangshesta í félagsheimili Fáks nk. þriðjudagskvöld(16. febr) kl. 19:30. Hún mun deila með okkur reynslu sinni og þekkingu sem hún hefur öðlast á einkar farsælum ferli. Við hlökkum til að sjá sem flesta félagsmenn okkar 🙂 Léttar veitingar verða í boði 🙂