Að venju stendur Fákur fyrir gámadögum á svæðinu í vetur og samkvæmt annari venju þá verða gámarnir  fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði milli klukkan fimm og sjö. Þriðjudaginn 1. mars er því annar gámadagurinn í vetur.

Allir þekkja orðið reglurnar þ.e. bara rúlluplast í annan gáminn og síðan annað plast í hinn. Ekki má koma með bretti eða timburúrgang eða svoleiðis rusl.

Gámadagar í Fáki í vetur.

2. febr.

1. mars

5. apríl

3. maí

og sennilega í byrjun júní.