Firmakeppni Fáks verður núna á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23.apríl.
Skráning er í TM reiðhöllinni sama dag frá 12-12:30.
Keppt verður í barnaflokk, unglingaflokk, ungmennaflokk, karlar 2, konur 2, karlar 1 og konur 1. Mótið endar svo á pollum og veitingum.

Keppnin er á beinni braut. Ein ferð hægt tölt og 3 ferðir frjáls gangtegund.
Engin skráningargjöld.

Við hvetjum fólk til að mæta í félagsbúningum.