Fákur hefur hafið formlegt samstarf við innheimtufyrirtækið Inkasso, sem mun sjá um að gefa út reikninga og eftirfylgni með þeim fyrir félagið. Þetta samstarf mun einfalda og gera greiðslukerfi Fáks skilvirkara og verður þannig vonandi til bóta fyrir alla.