Gleymdir þú að greiða félagsgjaldið á síðasta árið (2013)? Við hvetjum alla þá sem gleymdu sér að greiða félagsgjaldið sem fyrst og koma í veg fyrir að detta út af félagaskrá.

Til að halda úti öflugu félagslífi þarf Fákur á félagsgjöldum frá félagsmönnum að halda, enda væri ekkert félag til ef menn greiddu ekki félagsgjöld. Í lögum félagsins stendur m.a. að félagar sem skulda árgjald frá fyrra ári hafa ekki rétt til að taka þátt í keppnum á vegum félgsins né réttindi á fundum þess og að þeir falli útaf félagskrá 1. janúar það ár.

Við þökkum þeim kærlega fyrir sem greiða félagsgjaldið á réttum tíma – því sameinuð stöndum vér.

Kveðja frá stjórn Fáks