Aðalfundur Fáks verður haldinn í Félagsheimili Fáks miðvikudaginn 4. apríl klukkan 20:00. Stjórn Fáks óskar eftir framboðum til stjórnar en eins og segir í lögum félagsins þá þurfa framboð til stjórnar að berast viku fyrir aðalfund. Á fundinum í apríl verður kosið um formann til eins árs, gjaldkera til eins árs, ásamt ritara og 2 meðstjórnendum til tveggja ára. Hjörtur Bergstað núverandi formaður gefur kost á sér til áframhaldandi formannssetu, Heiðrún Sigurðardóttir, ritari, Leifur Arason og Maríanna Gunnarsdóttir gefa einnig öll kost á sér áfram en Kristrún Ágústsdóttir hefur kosið að láta af störfum sem gjaldkeri og gefur Maríanna Gunnarsdóttir kost á sér í þá stöðu.

Senda þarf framboð á fakur@fakur.is í seinasta lagi viku fyrir aðalfund. Allir áhugasamir eru hvattir til að sækja um.

Á dagskrá fundarins eru kosningar og venjuleg aðalfundarstörf.

Hvetjum alla til að mæta, léttar veitingar í boði og gott tækifæri til að koma sínum skoðunum á framfæri og hafa áhrif á félagsstarfið í Fáki, því sameinuð stefnum við að sama markmiðið sem er að allir fái að njóta sín í sinni hestamennsku.

Stjórn Fáks