Nk. miðvikudagskvöld verður fundur fyrir alla hestamenn á höfuðborgarsvæðinu í fundarröð Fagráðs um málefni hestamanna.  Með fulltrúum fagráðs, þeim Sveini Steinarssyni formanni Félags hrossabænda og fagráðs og Gunnfríði Elínu Hreiðarsdóttur ritara fagráðs, verður Haraldur Þórarinsson formaður Landsbands Hestamannafélaga og munu þau verða frummælendur fundanna.  

Fundurinn hefst kl. 20:00 og hvetjum við alla hestamenn og hrossaræktendur til að fjölmenna á fundinn og nýta tækifærið til að kynna sér starfsemina í greininni, leita upplýsinga hjá forystunni og leggja sitt til málanna.