Hinn geysivinsæli viðburður FEIF Youth Cup (FYCup) 2026 fer að þessu sinni fram í Rieden í Þýskalandi dagana 13. til 19. júlí.

Viðburðurinn er fyrir knapa á aldrinum 14-17 ára á árinu sem vilja öðlast keppnisreynslu á erlendri grundu. Þetta er einnig frábært tækifæri til kynnast ungum og efnilegum knöpum frá öðrum löndum.

Áhersla FYCup er á teymisvinnu, íþróttamennsku, bætta reiðfærni og vináttu þvert á menningu. Ísland á sjö sæti á FYCup en umsóknarfrestur er til og með 20. mars.

Íslenskir keppendur fá leigðan hest á meðan á mótinu stendur sem æskulýðsnefnd LH hefur milligöngu um að útvega, einnig geta þátttakendur útvegað sér sjálfir hesta, með samþykki nefndarinnar. Íslenska hópnum mun fylgja fararstjórar úr Æskulýðsnefnd LH.

Þátttökukostnaður er €1015, innifalið í því er gisting, fæði, kennsla, hesthúsapláss og skráningargjöld á meðan FYCup stendur. Þess utan þarf að greiða fyrir leigu á hesti, flug og aðrar samgöngur til og frá mótsstað, fararstjórn og umframgistingu, þar sem hópurinn mun fara út 12. júlí til að prófa og para saman hesta og knapa og áætluð heimakoma er 20 júlí.

Sótt er um með því að fylla út umsókn á vef LH.

Frekari upplýsingar veitir formaður Æskulýðsnefndar LH, Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir, aeska@lhhestar.is