Mótið verður haldið dagana 9.-14.maí n.k. í Víðidalnum og verður WR mót. Skráning fer fram dagana 1.-4.maí (miðnætti). Mjög strangt verður tekið á þessum skráningarfresti, ekki verður hægt að skrá eftir að honum lýkur og ekki verður tekið við skráningum sem berast með tölvupósti, þ.e. allar skráningar skulu fara í gegnum Skráningarkerfi Sportfengs:

http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add

Í boði verða eftirtaldar greinar og flokkar ef næg þátttaka næst:
F1 fimmgagur – meistaraflokkur
F2 fimmgagur – unglingar, ungmenni, 2.flokkur, 1.flokkur
V1 fjórgangur – meistaraflokkur
V2 fjórgangur – börn, unglingar, ungmenni, 2.flokkur, 1.flokkur
V5 fjórgangur – minna vanir
T1 tölt – meistaraflokkur
T3 tölt – börn, unglingar, ungmenni, 2.flokkur, 1.flokkur
T2 slaktaumatölt – meistaraflokkur
T4 slaktaumatölt – unglingar, ungmenni, 2.flokkur, 1.flokkur
T7 tölt – 17 ára og yngri
T7 tölt – opinn flokkur
PP1 gæðingaskeið – meistaraflokkur, 1.flokkur, 2.flokkur, ungmenni, unglingar
P1 250m skeið
P2 100m skeið
P3 150m skeið

Í ár verða settar fjöldatakmarkanir í ákveðna flokka og vegna þessa mun aðeins vera tekið við skráningum frá Fáksfélögum þann 1.maí. Keppendur úr öðrum félögum geta svo byrjað að skrá þann 2.maí. Fáksfélagar, munið að félagsgjöldin skulu vera greidd áður en skráning getur farið fram.
Dagskrá verður á þá leið að fjórgangur verður á þriðjudegi og miðvikudegi, fimmgangur á fimmtudegi og tölt á föstudegi. Athugið þó að þetta fer alveg eftir skráningu og eru þess vegna drög.
Skráningargjöldin verða þau sömu og í fyrra:
Meistaraflokkur – 6.500 kr. (nema gæðingaskeið 6.000 kr.)
1.flokkur, 2.flokkur og ungmennaflokkur – 6.000 kr.
Unglingaflokkur og barnaflokkur – 4.500 kr.
Kappreiðaskeið – 4.500 kr.

Hér er nýjasta útgáfan af lögum og reglum LH og FEIF, keppendur eru ábyrgir fyrir því að kynna sér þær: http://www.lhhestar.is/static/files/Log_og_reglur/2017/lh_logogreglur_28032017_prent.pdf

Mótanefnd Fáks