Mótanefnd Fáks þakkar frábærar viðtökur við skráningum á Reykjavíkurmót Fáks. Það verður mikil hestaveisla í Víðidalnum á Reykjavíkumeistaramótinu, en þar sem skráningafjöldinn er mikill þurfum við að byrja degi fyrr svo getum verið á þeim tíma sem flestir geta mætta á. Mótið hefst því á morgun (þriðjudag) og eru hér meðfylgjandi drög að dagskrá þriðjudagsins en endanlega dagskrá og ráslistar verða birtir síðar í dag. Restin af fjórganginum verður á miðvikudaginn, fimmgangur á fimmtudeginum og töltið á föstudeginum.
Drög að dagskrá þriðjudagsins.
Þriðjudagurinn 7. maí | |
14:00 | knapafundur |
17:00 | Tölt T7: Börn, Unglingar & opinn flokkur |
17:45 | Fjórgangur unglingaflokkur |
19:30 | Kvöldmatarhlé |
20:07 | Fjórgangur 1.flokkur |
21:52 | Dagskrárlok |
Ráslistar og endanleg dagskrá birtist síðar í dag.