Vetrarmót Fáks verður haldið laugardaginn 16. febrúar klukkan 12:00. Skráning fer fram í anddyri TM-Reiðhallarinnar milli 11:00 og 11:30. Skráningargjald er 2000 kr, frítt fyrir polla og börn.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
Pollaflokkur
Barnaflokkur
Unglingaflokkur
Ungmennaflokkur
Konur II
Karlar II
Konur 1
Karlar 1

Fyrirkomulag mótsins er þannig að pollar og börn keppa inni í reiðhöll klukkan 12:00. Aðrir flokkar keppa á stóra vellinum fyrir neðan félagsheimilið. Vöfflukaffi verður í félagsheimilinu frá 13:00.

Fákur áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í hverjum þeirra.